Eins og sagt er á laugardagur að
vera til lukku! Þessi laugardagur hefur bara verið ágætur dagur,
þrátt fyrir að ég hafi ekki unnið stóra vinningin í lottóinu eða
eitthvað slíkt!!
Byrjaði daginn vel með því að sofa yfir mig, vaknaði kl. 10:15 og
átti að vera mætt í píanótíma kl. 10.30. Svo ég “brunaði” uppí
Tónó, eftir að hafa hámað í mig ristaða brauðsneið með smjöri og
banana! Var hálf sofandi í byrjun tímans, en var orðin ágæt í
endann. Fékk að vita að ég fer í svokallað miðnámspróf (það er 6.
stig eftir gamla kerfinu) 28. febrúar næstkomandi.
Júhúúúúúúú´!!!!!! Gaman gaman
Þegar
ég kom heim langaði mig að gera eitthvað annað í dag heldur en að
hangsa heima og slefa yfir Simsunum mínum og ákvað að skella mér í
Þjóðminjasafnið! Nú hugsa eflaust margir: ohhh, Anna nördi!!! En ég
hef bara svo rosalega gaman af gamla tímanum og svoleiðis dóti. Ég
labbaði þarna um og skoðaði spjald af spjaldi um tíma Landsmannana,
Siðaskiptinguna, Einokunarverslunina o. fl. Þetta var s.s. saga
Íslands frá 800-2000. Ég hafði mjög gaman að þessu, fyrir utan
eitt. Stuttu eftir að ég kom inn kom hópur af erlendum túristum með
guide. Og hélvítis kellan talaði svo hátt (ensku, auðvitað) að ég
gat ekki *talað upphátt* í huganum þegar ég var að lesa. Og svo
vorum við svo samstíga- ég og hópurinn, að ég gat ekkert hlupið í
burtu. Svo talaði hún svo bjagaða ensku að það skar í eyrun!!!
Þetta eru semsagt tvær hæðir af sögu Íslands og þegar ég var komin
á enda sýningarinnar var svona tímabelti (í bókstaflegri merkingu!
) Þar voru alls kyns munir frá árum áður, alveg frá 1900 og að
21. öldinni (Nike skór og þannig varningur). Þetta var byggt upp
eins og farangurs-beltin á flugvöllunum. Gaman að skoða gamla
bíómiða og fleira! Þegar ég var komin á neðri hæðina fór ég að
skoða ljósmyndasýningu um táninga á 7. áratugnum- Með tyggjó og
túberað hár. Mjög skemmtileg sýning. Myndir af bítlaæðinu, myndir
af böllum og menntaskólamyndir. Allir með hár með sjálfstæðan vilja
og flestir í svipuðum sixties fötum. Þessi fatastíll er að koma
aftur inn, eins og oft er sagt, tískan gengur í hringi. Bara með
því að heimsækja búðir eins og Rokk og Rósir eða Spútnik, er mikið
af fötum í anda 7. áratugsins. Svo stoppaði ég við í gift-shop
búðinni og sá svo frábæran krossasaum, svona til að sauma sjálfur.
Þetta er eins og þær saumuðu, kellurnar, í gamle
dage!!!

Ég nennti nú ekki að fara strax
heim eftir þetta, svo næst var haldið í göngutúr á
Laugaveginn. Fór í sæta Vínberið og keypti mér meðal annars
súkkulaði peninga sem íslenskum 100 kalli er þrykkt á. Mjög
sniðugt. Labbaði svo bara áfram að Hlemm og beið eftir
stætó.
Þegar ég var að bíða eftir strætó, kemur maður að mér, greinilega
ekki Íslendingur, og spyr mig hvort strætó sé ekki að koma. Ég
jánka því. Svo förum við bara að spjalla aðeins. Hann segir mér að
hann heiti Bart, og þá sagði ég: Eins og Bart Simpsons??? :Þ Eftir
smá spjall segir hann allt í einu: You have a beautiful face. Og ég
bara *roðn*. En í þokkabót sagðist hann vona að ég væri ekki í
módelbransanum, var víst ekki fylgjandi því. Og ég myndi nú ekki
nenna því, þurfa að vera ofumjó og borða bara eitt epli á dag!!!!
Hann settist síðan hjá mér í strætó (eða á móti) og við spjölluðum
aðeins meira saman. Það er oft með þessa útlendinga, þeir eru
soldið uppáþrengjandi. Annað en íslenskir strákar sem þora ekki að
segja neitt við stelpur, nema þeir séu búnir að fá sér í tána. Svo
hann Bart gaf mér númerið sitt (á nafnspjaldi og alles) en bara til
að hittast sem vinir. Yeah right!!!!! Ef þið eruð uno desperato
senjora þá skuluð þið bara hafa samband við mig og ég skal gefa
ykkur númerið hjá honum!!!


Það var alveg frábært að
ganga aðeins um í 101 RVK, verst að ég á ekki digital myndavél. Það
hefði verið flott að smella af nokkrum myndum og sýna
ykkur!
Eins
og eitt skiltið sem ég sá stóð eftirfarandi:







AFFERMING
EÐA
FERMING